Hrökkbrauð með osti

Uppskriftir þeytast á milli manna á marga vegu. Allmargar er hægt að finna á netinu, sumar fær maður í saumaklúbbum og vinahópum,  að ógleymdum öllum  uppskriftunum sem deilt er á kennarstofunni. Stundum þykir körlunum þar nóg um og á bóndadaginn þegar þeir „ráða“ umræðuefninu hafa þeir  óskað eftir því að þann dag sé ekki talað um prjónaskap, uppskriftir og megrun.

Hér fyrir neðan er uppskrift að hrökkbrauði og hana fékk ég einmitt á kennarastofunni en ekki á bóndadaginn. Það góða við hana er að hún er einföld og fljótleg og hægt er að setja margs konar bragðefni og krydd saman við deigið til að fá fjölbreytni í bragðið. Einnig er hægt að strá kryddi, salti eða osti yfir hrökkbrauðið. Í morgun reif ég niður ostaafgangana sem voru farnir að pirra mig í ísskápnum og dreifði yfir hrökkbrauðið þegar 10 mínútur voru eftir af bakstrinum.

hrokkbraud

Hrökkbrauð

1 dl hörfræ

1 dl graskersfræ

1 dl sesamfræ

1 dl sólblómafræ

2 dl heilhveiti

1 dl íslenskt byggmjöl

1 dl tröllahafrar

1 dl olífuolía

2 dl vatn

1 tsk vínsteinslyftiduft

1/2 tsk salt frá Saltverkinu

Allt er sett í hrærivélina og hrært saman. Deiginu er síðan skipt í tvo hluta og sett á  bökunarpappír á borðið. Síðan setur maður bökunarpappír ofan á deigið og fletur það út eins og pönnuköku með kökukefli. Svo er efri pappírinn tekinn ofan af áður en deigið er sett á bökunarplötu og inn í 180°C heitan ofn. Ég sker deigið niður í hæfilega bita áður en ég set það inn í ofninn. Hrökkbrauðið er bakað í um það bil 20-30 mínútur.

Fjallagrasabrauðið

fjallagrosEin af dillum mínum er að geta ekki gengið framhjá fjallagrasaþúfu án þess að fara fingrum um hana og velta fyrir mér hvort ég eigi nokkuð nóg af grösum heima. Oftast rata nokkur grös ofan í vasa minn eða poka. Þegar heim er komið þarf að hreinsa grösin, þurrka þau og ég geymi þau í glerkrukkum sem ég merki fundarstað þeirra og ártali.

Bestu grösin finnast mér auðvitað grösin frá Hornströndum. Það eru engar ýkjur að þau grös eru stærri og kraftmeiri en þau sem ég rekst á nærri byggð. Það sé ég greinilega þegar ég ber þau saman önnur grös úr merktu krukkunum!

Helst nota ég fjallagrösin í bakstur og í morgun hrærði ég í fjallagrasabrauð. Upphaflegu uppskriftina fékk ég hjá Lillu á Hnjúki í Skíðadal en ég hef aðeins lagað uppskriftina að því sem mér þykir best.

Fjallagrasabrauð

2 bollar fínt speltmjöl

2 bollar gróft speltmjöl (eða íslenskt malað bygg)

2 msk hrásykur (eða hunang)

2 tsk vínsteinslyftiduft (allt í lagi að nota það venjulega)

1/2 tsk natron

1/2 dl kúmen (má steyta það ef tími er til)

1/2 dl sesamfræ

4,5 dl mjólk (það má líka setja bara 2,5 dl. á móti 2 dl af AB mjólk)

um það bil 1 bolli af bleyttum fjallagrösum

0,5-1 tsk af Reykjanessaltinu góða (þá fæst líka bragð af Ísafjarðardjúpinu  í brauðið)

Allt sett í skál og hrært vel saman. Ekki hræra mikið því speltbrauðin verða seig ef maður hamast mikið í deiginu. Deiginu er skipt í 2 lítil form og brauðin eru bökuð neðst í ofni í 1 klst við 190°C. Ekki er mælt með því að nota blástur.

Óveðursbakstur

Í dag, 4. mars 2013, er óveður víða á landinu og þurfti ég að fresta skóla vegna þess. Að venju kallaði óveðrið og inniveran á bakstur svo ég hræðri í bananabrauð. Þessi uppskrift er sett saman úr nokkrum uppskriftum sem ég safnaði einhvern tímann saman af netinu og fannst engin þeirra nógu góð. Svo úr varð þessi og hún bregst aldrei. Í hana þarf 3-4 vel þroskaða banana. Stundum er meira að segja hægt að fá poka með nokkrum ofþroskuðum bönunum í Bónus á innan við 100 kr.

2 dl fínt speltmjöl

2 dl gróft speltmjöl (öðrum þeirra má skipta út fyrir íslenskt byggmjöl)

2-3 tsk vínsteinslyftiduft

1 dl sólblómafræ

3-4 þroskaðir bananar

2 egg

2 msk olía eða kókosolía

1 lúka haframjöl og önnur til að strá yfir brauðið

1 msk sítrónusafi

Stappið bananana og blandið eggjunum saman við. Blandið svo restinni af innihaldinu saman við. Speltbrauð á helst ekki að hræra mikið. Deigið er frekar blautt. Þetta passar í eitt stórt kökuform. Er bakað í 45-50 mínútur við 200°C á undir og yfirhita neðarlega í ofni.

Best volgt með osti og smjöri. Image