Ritunarbúðir í Eyjafjarðarsveit

Ert þú doktorsnemi eða fræðimaður sem leitar að samfelldum tíma til að skrifa og ígrunda? Ertu að leita leiða til að draga þig í hlé frá daglegu amstri í friðsælt umhverfi þar sem hugsað er fyrir máltíðum, þú færð ráðleggingar um hæfilega hreyfingu og getur fengið samtal um skrifin?

Við getum boðið þér:

  • Afdrep þar sem þú getur sökkt þér ofan í skrif
  • Skutl til og frá flugvelli eða strætóstoppistöðinni
  • Þrjár máltíðar á dag og næringarríkt millimál
  • Tillögur og leiðsögn að daglegri og hæfilegri hreyfingu í nærumhverfinu
  • Samtal um rannsóknir þínar og skrif

Afdrepið er herbergi á heimili okkar að Hjallatröð 1 í Eyjafjarðarsveit. Við sækjum þig til Akureyrar ef þú óskar eftir því. Til að þú getir einbeitt þér að skrifunum sjáum við um matinn og aðra næringu eins og hvernig þú getur nýtt þér möguleika nærumhverfisins til að hreyfa þig og við erum tilbúin til samtals um skrif þín og rannsóknir.

Ef þetta vekur áhuga þinn sendu okkur tölvupóst til að fá nánari upplýsingar um afdrepið og lausa daga í ritunarbúðunum.

Ingileif Ástvaldsdóttir, dokotorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, heimilisfræðikennari við Hrafnagilsskóla og jógakennari hjá Litlu yogastofunni ingileif@bjarkir.net og Halldór S. Guðmundsson, prófessor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, halldor@bjarkir.net.