Heklaðir grænmetis- og ávaxtapokar

IMG_6746

Á ferðalögum, úti á palli, við sjónvarpið eða hvar sem er, þar sem ég get unnið handavinnu sem krefst ekki fullrar athygli finnst mér gaman að hekla. Það nýjasta eru pokar sem hægt er að taka með sér í búðina og setja ávextina eða grænmetið í en auðvitað ekki fyrr en búið er að vigta innkaupin svo við greiðum ekki fyrir vigtina á pokunum í hvert sinn sem við förum í búðina.

Ég sá þessa poka hjá frænku minni og vinkonur mínar hafa svo séð þá og langað að hekla aðra eins poka. Eftir bestu getu hef ég skráð hvernig ég hef útfært þessa hugmynd. Ef þú vilt fá aðgang að þeirri skráningu hafðu þá samband við mig til að fá lykilorð inn á skráninguna.

Krakkakúrur

img_7752

Horft og kúrt á rigningadegi sumarið 2015

Fyrir um það bil tveimur árum gaf tengdamóðir mín mér afganga af bómullargarni sem hún gat ekki notað og við héldum að ég gæti notað það í klúta- eða tuskuhekl. Seinna kom í ljós að svo var ekki, þannig að ég ákvað að hekla dúkkuteppi fyrir ömmustelpurnar. Úr varð að ég heklaði teppi sem er ögn stærra en ungbarnateppi (120 cm x 80 cm) og ég kallaði krakkakúru; þ.e.a.s. teppi fyrir krakka til að kúra undir. Í teppið fóru líka aðrir garnafgangar sem ég tíndi til úr öllu skúffum og skápum. Það er mesta furða hvað hefur safnast mikið upp af garni í húsinu. En úr þessu safni varð hið besta teppi sem krakkar kúra undir og láta sér líða vel eða nota það til að leika sér.

 

Þó fyrsta krakkakúran væri komin í notkun var ennþá nóg til af garni og mér sýndist ég geta gert aðra. Ég byrjaði á annarri krakkakúru í jólaleyfinu 2015. Þetta var verkefni sem ég greip af og til í og vann með annarri handavinnu árið 2016. Ég vann í því þegar ég tyllti mér niður í stofunni og vantaði eitthvað til að hafa á milli handanna eða ég hafði ekkert annað að hekla eða prjóna.

Ég lenti að vísu í vandræðum þegar mér datt í hug að setja ömmudúllur í miðjuna og þurfti að hugsa framhaldið uppá nýtt. Það fór svo að ég þurfti að „byrja á endanum“ og hekla þann hluta svo við dúllurnar í miðjunni. Í þessu brasi komst ég næstum í fýlu út í verkefnið en dúllaði samt við það af og til. Í jólaleyfinu um daginn komst ég svo að því að lítið var eftir og að nú væri kannski hægt að nota tímann til að sættast við þessa krakkakúru og ljúka við hana.

Nú bíða tvær krakkakúrur í sófanum á Þelamörk eftir því að krakkar komi í heimsókn kúri undir þeim eða noti þær í leiki, úti eða inni. Og hver veit nema þriðja krakkakúran verði svo til á þessu ári?

img_1925

Enn er nóg til af garninu

 

 

 

Borðtuskuæðið

Borðtuskupakkar

Ekki þær fyrstu og ekki þær síðustu sem urðu til á ferð og flugi.

Í meira en eitt ár hef ég verið með heklunál og garndokku í veskinu svo ég geti gripið í borðtuskuhekl þegar færi gefst og ég sé að þannig er það hjá fleirum. Eiginlega má segja að borðtuskuæði hafi gripið um sig hjá þeim sem á annað borð byrja á þessu enda er auðvelt að smitast af þessari iðju. Til marks um þetta veit ég um tvo hópa á Facebook þar sem hægt er að skiptast á hugmyndum, sýna hvað er á prjónunum eða nálinni og fá leiðbeiningar og hrós. Annar hópurinn heitir Brjálaðar borðtuskur og hinn Borðtuskurnar okkar.

Það er ekki bara á Facebook sem hægt er að ná sér í uppskriftir. Á Pinterrest og víðar á netinu er hægt að verða sér úti um hugmyndir. Þar sem ég hef líka gaman að því að vafra á netinu rakst ég fyrr á þessu ári á uppskriftir að tuskum þar sem bara eru notaðir fastapinnar en á þrjá mismunandi vegu. Þar sem plögg úr pastapinnum eru fastari og þéttari í sér en þegar notað er annað hekl er betra að nota annað hvort grófari nál eða grófara garn en venjulega. Þegar ég prófaði þessa uppskrift valdi ég bæði ögn grófara garn og heklunál sem er hálfu númeri stærri en ég nota venjulega.

Á Akureyri er handavinnubúðin Quiltbúðin sem selur garn, efni og alls kyns áhöld og fylgihluti fyrir handavinnuna. Þar get ég alltaf fundið það sem mig vantar og ef það er ekki til í búðinni er þar alltaf hægt að fá hjálp við að finna annað sem kemur í staðinn. Þegar ég ákvað að prófa fastapinna-tuskurnar keypti ég þar sprengt akrylblandað bómullargarn sem heitir Belice og er frá Katia. Það er allt í lagi að þvo það á 60° en ég hef ekki prófað að sjóða það. Til að hekla fastahekl úr þessu garni notaði ég heklunál nr. 3,5.

Halda áfram að lesa