Ristaðar möndlur innblásnar af múslíblöndunni góðu

Image

Orkunasl

Ingileif frænka kenndi mér að sykurbrúna möndlur (jóla- og aðventunasl) og svo hef ég vanið mig á að eiga alltaf tamari-ristaðar möndlur. Þegar ég gerði granólamúslið í dag varð afgangur af möndlunum og í stað þess að setja þær ofan í skúffu prófaði ég að búa til orkunasl innblásið af múslíblöndunni. Orkunaslið verður auðvitað nesti í gönguferðunum í næstu viku.

400 g möndlur með hýði

Setjið möndlurnar í 180°C heitan ofn þar til þær fara að verða gylltar á litinn.

Á meðan þær eru í ofninum setjið pönnu á eldavélina og stillið á meðalhita. Á pönnuna fara:

2 msk hnetusmjör

2 msk himnesk kókosolía

2 tsk hunang

salt milli fingra

2 msk sesamfræ

Hitið þessa blöndu að suðu.

Þegar möndlurnar eru orðnar gylltar er þeim dembt saman við blönduna á pönnunni. Hafið meðalhita á hellunni og hrærið í blöndunni þar til möndlurnar eru þurrar og losna hver frá annarri.

Sumum finnst betra að sjóða upp á möndlunum áður en þær eru ristaðar á pönnunni. Ég hef aldrei gert það. Mér dugar að setja 2-3 msk af vatni yfir möndlurnar um leið og ég tek þær úr ofninum og áður en ég set þær á pönnuna. Vatnið sýður á möndlunum og gufar upp og möndlurnar mýkjast mátulega.

Orkuríkt granolamúslí

Image

Freistandi og orkuríkt múslí

Í vetur rak á fjörur mínar freistandi uppskrift að granolamúsli. Þá fór hún í bunkann með öllum hinum sem á eftir að prófa.

Nú þegar göngurnar eru framundan og við Halldór tókum að okkur að sjá um morgunmatinn fyrir allan hópinn var tímabært að draga fram þessa uppskrift. Og í dag prófuðum við Árni Heiðar að vinna eftir henni. Hann fékk að sjálfsögðu að hræra í þurrefnunum og síðan að sjá um forþvottinn á skeiðinni sem ég notaði til að hræra í blautefnunum.

Þetta er nokkuð stór uppskrift svo undir venjulegum kringumstæðum myndu vinir mínir fá að hluta hennar.

Þurrefni:

250 g hafrar

75 g kókosflögur

75 g kasjúhnetur

75 g pekanhnetur

75 g saxaðar möndlur með hýði

75 g sólblómafræ

40 g graskersfræ

40 g sesamfræ

1 tsk vanilluduft

2 tsk rifið múskat (hægt að nota duft)

1 tsk gróft salt

Blautefni:

80 g kókosolía

80 g hnetusmjör

1/2 dl hunang

Blanda þurrefnum saman í eina skál og blautefnunum í aðra. Blanda svo blautu blöndunni saman við þurrefnin. Gott að nota einnota hanska við það. Dreifa svo öllu jukkinu á ofnplötu og baka í ofni við 170°C í 15-20 mínútur. Hræra öðru hverju í blöndunni á meðan hún er í ofninum.

Við Árni Heiðar getum bæði mælt með þessu músli því eftir að það kólnaði gátum við ekki hætt að næla okkur í bita úr blöndunni og stinga uppí okkur.

Hitt hrökkbrauðið

Gerlaust hrökkbrauð

Gerlaust hrökkbrauð

„Hitt“ hrökkbrauðið sem ég baka reglulega geri ég eftir uppskrift úr Gestgjafanum og þar heitir það Gerlaust hrökkbrauð:

50 g sólblómafræ

3 msk hörfræ

50 g sesamfræ

230 g heilhveiti

1 tsk salt

1 3/4 dl volgt vatn

1 1/2 msk hunang

2 msk olía

Hitið ofninn í 200°C. Malið sólblómafræ og hörfræ lítillega í matvinnsluvél. Blandið fræjunum, heilhveiti og salti saman í skál. Bætið vatni hunangi og olíu út í og hnoðið deigið í 5 mín (ég nota hrærivélina og set á hana hnoðarann). Skiptið deiginu í tvenn og fletjið það í 2 ferkantaðar kökur. Setjið kökurnar á bökurpappír á bökunarplötur og skiptið í bita með pizza-skera (ég nota kleinujárn og sker kökurnar á borðinu og raða þeim á bökunarplötuna). Þið getið líka skipt deiginu í 10 kökur og flatt það þunnt út í kringlóttar kökur; stingið gat úr miðju ef þið viljið. Bakið í (+) 10 mín. Kælið vel. Geymist vel í boxi. Má frysta.

Ég hef hnoðað kúmen saman við helminginn af kökunum og stundum stungið litlar kökur úr deiginu með kökuformum og strái Reykjanessalti yfir þær. Þær kökur/kex er hægt að bera fram með ostum í staðinn fyrir Ritz-kex eða annað „ostakex“.