Greinasafn vefs
Tengill
Þörf lesning. Hér er samantekt á því sem hefur verið rannsakað og skrifað um rafrænt einelti í Noregi. Ekki ástæða til að halda að hlutirnir séu á annan veg hér á landi.
Tengill
Bekkjarblogg í norskum unglingabekk
Hér er góð hugmynd sem er vel útfærð og fylgt eftir. Hér er um að ræða bekkjarblogg sem bekkur hefur haldið úti með kennara sínum í 8.-10. bekk. Á hverjum degi sér einn nemandi um að setja inn dagbókartexta um skóladaginn. Nemendur hafa verið um það bil 30 og því hefur hver nemandi haft þetta verkefni á 30 daga fresti.
Í lok hvers skólaárs hafa nemendur fengið árbók með öllum textunum sem hafa birst.