
Jannúarsúpan góða
Um þessar mundir eru margir að skoða hvað þeir láta ofan í sig og sumir eru alltaf í þeim pælingum. Ég er þar á meðal enda hef ég komist að því að ekki á allur matur vel við skrokkinn. Um síðustu helgi gerði ég grænmetissúpu sem er það sem kallað er í þessu húsi súpa „án alls“. Súpuna gerði ég úr grænmetinu sem til var til í ísskápnum og til að geta endurtekið leikinn fannst mér rétt að skrá hana hérna og jafnframt að leyfa öðrum að prófa. Og af því magnið er skráð eftir minni er auðvelt að þróa þessa uppskrift í hvaða átt sem hentar.
Súpan hefði dugað fyrir sex manns og af því við erum bara tvö í húsi þá á ég súpuskammta í fyrsti sem ég get tekið með mér í nesti.
- 2 msk kókosolía
- 1-2 tsk gott karrý
- 5-6 stönglar af brokkolí, skornir í hæfilega bita
- Hálf sæt kartafla, skorin í litla teninga
- 5 gulrætur, skornar í bita
- 1 laukur saxaður
- 2 pressuð hvítlauksrif
- 4-5 þurrkaðar chiliflögur
- 2 vænar tsk af góðum grænmetiskrafti sem er án gers
- 0,5 lítri vatn
- 1 ds kókosmjólk
- Salt og pipar eftir smekk
- Saxað ferskt kóriander til að dreifa ofan á súpuna þegar hún er borin fram
Hitið kókosolíuna í potti og hitið karrýið í olíunni. Mýkið svo grænmetið í olínunni og bætið hvítlauknum og chiliflögunum útí. Setjið svo vatnið og grænmetiskraftinn útí og látið sjóða í 10-15 mínútur. Bætið þá kókostmjólkinni útí, saltið og piprið að smekkt. Hitið að suðumörkum. Berið fram með söxuðum kóriander.
Þeir sem vilja geta sett súpuna í blandarann og maukað hana. Daginn sem ég eldaði súpuna borðaði ég hana með öllum bitunum en áður en ég frysti hana setti ég hana í blandarann. Hún er alls ekki verri þannig.
Verði ykkur að góðu.