Eitt af verkefnum ársins var að læra betur á Word Press og laga þetta blogg. Í þeim tilgangi skráði ég mig á vefnámskeið hjá Promennt um Word Press sem heitir Vefurinn minn. Námskeiðið er í sex sinnum í mars, þrír þriðjudagar og þrír fimmtudagar frá kl. 18-21. Það eru 10 manns skráðir og átta þeirra mæta á staðinn og ég og önnur erum í fjarfundi í gegnum Skype.
Nú eru fjögur skipti búin og fyrir næstu kennslustund áttum við að skoða þemu eða útlit fyrir síðuna sem stendur til að búa til og einnig að finna út úr því hvar við vildum hýsa hana og setja Word Press upp á síðunni. Með góðri hjálp hafði ég lokið við að ná mér í lén og setja upp Word Press. Lénið er auðvitað http://barabyrja.is/ en þar er ekkert um að vera ennþá því ég er enn að finna mér útlit og að skissa upp skipulag síðunnar.
Síðan skissuð upp
Í morgun skissaði ég upp síðuna og áforma ég að sama innihald og á blogginu en skipuleggja það betur og láta það líta betur út en sú sem hérna er. Fyrst krassaði ég það upp en svo notaði ég tækifærið og reyndi að finna út hvort til væri viðbót í Google fyrir hugarkort eða flæðirit. Þá fann ég grein á Educational Technology and Mobile Learning þar sem fjallað er um fjórar leiðir til að búa til hugarkort og flæðirit á Google Drive. Ég valdi að setja upp MindMup af því ég hafði aldrei heyrt um það áður. En Lucidchart hafði ég séð og fengið kynningu á enda virðist það meira notað ef marka má umfjöllun um það á síðu Google þar sem hægt er að ná sér í viðbætur.

Skissan sem gerð var í MindMup
Þema og útlit
Framboð af þemum fyrir heimasíður í WordPress er mikið og það er lítill vandi að gleyma sér við að skoða smartheit og fídusa. Ég byrjaði einfaldlega á því að slá inn „free Word Press themes“ og datt þá inn á síðu Colorlib þar sem sagt er frá 50 ókeypis þemum og kostum þeirra. Ég er langt komin að skoða hann og er búin að búa mér til lista yfir þau sem mér líst vel á. Þegar ég hef skoðað mig sadda á Colorlib og víðar áforma ég að nota útilokunaraðferðina við að velja mér þema. Ég vil að þemað sé:
- Stílhreint og einfalt í útliti
- Fallegt
- Nokkuð hefðbundið en samt smart
- Einfalt í vinnslu
Lært af ferlinu
Til að halda utan um lærdóminn sem er framundan hef ég sett upp lokaðan hóp á Facebook sem heitir Bara byrja. Þar ég set inn stuttar færslur um ferlið. Þar geta þeir sem hafa áhuga fylgst með ferlinu og vonandi gefið mér ráð um útlit og innihald. Þegar vefurinn verður svo tilbúinn er meiningin að gera hópinn opinberan (e. public) og að þangað verði settir hlekkir með pistlum af vefnum. Svo ætla ég auðvitað að setja saman stutta pistla eins og þennan um það sem ég geri. Meiningin er að allt sem er á þessu bloggi flytjist yfir á nýja vefinn. Hvernig sem það verður nú gert. Það verður gaman að læra það og koma í verk.