Um þessar mundir les hópur kennara saman bókina br@in-based teaching 🙂 in the digtal age eftir Mailee Sprenger. Það kom í minn hlut að gera grein fyrir innganginn og fyrsta kaflanum. Til að æfa mig betur í notkun Padlet og hvernig það virkar bæði á tölvu og Ipad gerði ég samantektina mína í því umhverfi. Það gekk vel enda er Padlet einfalt og auðvelt í notkun.
Samantektina var auðvelt að setja inn í WordPress umhverfið og er því hægt að lesa hérna fyrir neðan:
Og til að fá útrás fyrir Qr-kóða aðdáun mína nýtti ég mér líka þann möguleika í Padlet til að deila samantektinni:
Þeta eru mjög áhugaverðar pælingar. Ein spurning, er í dag hægt að segja að til séu tveir heimar, rafrænn og svo rauntíma. Spurning hvort við verðum ekki að fara að segja í nútímanum og meina þá báða þessa heima. Rafræni heimurinn er fyrir mér minn veruleiki alveg eins og mann heimurinn. Ég vil meina að ég lifi ekki tvöföldu lífi, þetta er mitt líf. Þessir heimar hafa runnið saman í einn heim.