Mér finnst gaman í vinnunni minni sennilega af því það er svo fjölbreytt og það er alltaf nóg að gera. Meðal skólastjórnenda eru til margar gamansögur af daglegu starfi og þeim fjölbreyttu verkefnum sem þeir hafa leyst af hendi. Um daginn rakst ég á þetta tíst og fannst það lýsa vel sumum dögum í vinnunni minni:
1/2 As a schl leader, am not sure how to demystify role. „Take 1000 things, cram into a day + thunderstorm at 3:00“ pic.twitter.com/uuFNfP8WHb
— Simone Coogan (@SimoneCoogan) September 30, 2015
Mér til gamans hef ég á undanförnum mánuðum tíst handahófskennt skilaboðum á Twitter undir umræðumerkinu #skólastjórnun. Þetta hef ég gert til að halda utan um fjölbreytileika starfsins og minna mig á, t.d. þegar ég skoða launaseðilinn minn, að það er meðal annars fjölbreytileikinn sem mér finnst gera starfið eftirsóknarvert.

