Site icon Bara byrja

Gagn og gaman á UTís2015

Á síðasta föstudag og laugardag (6. og 7. nóv. 2015) var ég svo heppin að fá að taka þátt í UTís2015 á Sauðárkróki. UTís2015 voru vinnu- og menntabúðir um notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Þar komu saman kennarar og aðrir sem hafa áhuga á upplýsingatækni í skólastarfi. Snemma í haust barst boð um þátttöku og mér skilst að tvisvar sinnum hafi verið hægt að fylla þau pláss sem voru í boði. Eðlilega stýra laus gistirými og önnur aðsta á staðnum þeim fjölda sem getur sótt vinnu- og menntabúðirnar en 63 sóttu hana.

Svo heppilega vildi til að við Lína vinkona sóttum báðar um að koma á UTís og fengum báðar pláss og auðvitað byrjaði föstudagurinn á því að taka af okkur sjálfu og segja öllum frá því á samfélagsmiðlum að við værum núna loksins aftur saman á skólabekk. En það gerðist síðast þegar við vorum í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði. Við mættum auðvitað á fimmtudagskvöldinu og náðum gæðastund á hótelherberginu með rauðvíni, vinkonuspjalli og hekldótinu.

Í þessari færslu skrái ég það gagn og það gaman sem ég hafði af vinnu- og menntabúðunum UTís2015:

Föstudagurinn 6. nóvember

10.10-10.30 Móttaka í Árskóla á Sauðárkróki
10.30-12.00 Heimsókn í Árskóla

Í fyrri hluta þessa dags lærði ég, gerði og datt mér í hug:

12.00-12.45 Hádegismatur í Húsi frítímans (Sushi/Mexíkósk vefja)
12.45-13.45 Vinnustofa um markmið og tækni (Ingvi Hrannar) – Hús frítímans

Í þessum hluta dagsins:

14.00-16.30 Vinnustofur – fyrri hluti

-iBooks Author (Guðný Sigríður og Bergmann)
-Nearpod (Ingvi Hrannar)
-GAFE – Google Apps For Education (Hans Rúnar og Álfhildur)
FabLab (Valur Valsson, verkefnastjóri hjá NMÍ)

Í þessum hluta valdi ég að kynnast GAFE, Google Apps For Education:

16.30-19.30 Frjáls tími (Sund á Hofsósi fyrir þá sem vilja)

19.30-20.00 Fordrykkur í Árskóla
20.00-21.30 Hátíðarkvöldverður á Drangey restaurant
21.30-23.30 Hittingur þátttakenda á MicroBar

Laugardagurinn 7.nóvember

10.00-12.00 Menntabúðir frá þátttakendum (2×50 mín.)

Eins og sjá má var erfitt að velja sér menntabúð því margt áhugavert var í boði.

Myndir fengnar að láni frá Svövu Pétursdóttur

12.00-13.00 Hádegisverður á Drangey restaurant (Súpa og brauð)

13.00-15.00 Vinnustofur- seinni hluti (áframhald frá föstudeginum)

15.00-16.00 Kynning á afurðum, samantekt og slit

Sunnudagurinn 8.nóvember

Exit mobile version