Á fimmtudaginn er sumardagurinn fyrsti og allt útlit fyrir að veðrið muni minna á vorið og sumarið.
Enn fagna skátarnir sumrinu með skátamessu í Hallgrímskirkju en ekki veit ég hvort það er líka ennþá gert á Ísafirði. Ég man eftir því að sem yrðlingur og skáti hafi ég ásamt öðrum krökkum á Ísafirði mætt í skrúðgöngu sem þrammaði í hvaða veðri sem var frá Skátaheimilinu að kirkjunni til að fagna komu sumarsins.
Þennan dag fengum við líka sumargjafir. Það var venjulega eitthvað sem minnti á sumarið; bolti, sippuband eða ný sumarföt.
Sjálf fékk ég mér nýjan hlaupajakka.
Gleðilegt sumar.
