Site icon Bara byrja

Það hafðist – en ekki á You Tube samt

Í gær tókst að ljúka tilraun sem fólst í að vinna með beina útsendingu og Flipgrid. Það var tilraun númer tvö. Færri komust að en vildu; ekki vegna plássleysis heldur vegna þess að viðburðurinn þurfti að flytja sig á milli svæða og verkfæra. Og ekki allir náðu að rata á réttan stað.

Í fyrradag hafði fyrsta tilraunin heldur betur misteksti eins og rekið var í þessari færslu. Þess vegna æfði ég mig vel í fyrrakvöld fyrir viðburð gærdagsins og heimilsfólk, nær og fjær, fékk þá að taka þátt. Ég prófaði beina útsendingu á You Tube bæði með streymishugbúnaði og án hans. Allt gekk vel þetta kvöld. Svo þegar ég mætti á rúllukragapeysunni fyrir framan skjáinn í gær virtist ekkert virka. En ég komst aftur inn en það vildi ekki betur til en svo að mér var aftur hent út! Núna fyrir hljóð sem ekki væri leyfi til að streyma á You Tube. Ég, sem var ekkert farin að syngja eða herma eftir fólki. Bara rétt að byrja upplesturinn.

Við sem eftir vorum í þessari tilraun fluttum okkur yfir á Facebook-hópinn Spurt og svarað um Flipgrid og lukum beinu útsendingunni þar. Á eftir náðum við að hittast á Zoom, eins og til stóð. Þá ræddum við markmið og notagildi beinnar útsendingar og Flipgrid. Þær sem höfðu tíma og þolinmæði alla leið voru þær Guðný Ólafsdóttir kennari í Dalvíkurskóla og Fjóla Þorvaldsdóttir leikskólakennari og verkefnisstjóri sérkennslu hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Eftir fundinn hringdi Sólveig Zophaníusdóttir aðjúnkt við HA svo í mig og við ræddum tilraunina og mögulegar útfærslur á hugmyndinni.

Í þessari ímynduðu kennslustund hlustuðu „nemendur“ á sögubrot og spáðu fyrir um framhald sögunnar. Kennslustundin var hugsuð sem hluti af æfingu í gagnvirkum lestri og reiknað var með því að nemendur þekktu hlutverkin fimm í gagnvirkum lestri; kúrekann, listamanninn, spæjarann, fréttamanninn og spákonuna. Í þessari kennslustund voru nemendur í hlutverki spákonunnar og skiluðu hugmyndum sínum á myndböndum á Flipgrid.

Á fundinum ræddum við hvað væri eiginlega verið að þjálfa eða æfa í beinni útsendingu? Hvað fengist með því að kennarinn setti kennslustundina í beina útsendingu án þess að vera í gagnvirkum samskiptum við nemendur sína á meðan á kennslustundinni stóð. Í umræðum kom eftirfarandi fram:

Af þessari tilraun lærði ég nokkuð margt. Það var m.a:

  1. Beinar útsendingar á You Tube eru ekki einfaldar. Það fékk ég að reyna og fékk staðfest hjá frumburðinum sem er alvanur beinum útsendingum. Hann sagði: „Æ, þurftir þú nú að lenda í þessu mamma, You Tube er svooo erfitt. Finndu þér annað stað ef þú ætlar að stunda þetta“.
  2. Nettengingin í Hjallatröðinni dugar varla fyrir beinar útsendingar. Jafnvel ekki á Facebook. En það stendur til bóta með hækkandi sól.
  3. Ég á þolinmóða og lærdómsþyrsta vini sem eru tilbúnir að vasast í svona tilraunum með mér. Takk öll sem sýnduð þessu áhuga og þolinmæði. Án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika.
  4. Það er þess virði prófa það sem ég rekst á og finnst á einhvern hátt athyglisvert og að gefast ekki upp – bara finna sér staðinn eða verkfærið þar sem hægt er að klára.
  5. Flipgrid er alltaf fyrirtak! Það hefur mjög marga möguleika sem má nýta í námi. Það er bara að byrja og að prófa sig áfram.

Ef þú vilt prófa þig áfram þá er ekkert annað að gera en að byrja bara. Fyrsta skrefið gæti verið að:

Exit mobile version