
Á starfsmannafundum kemur það fyrir að þar þarf að vera með fræðslu á glærusýningu. Það kemur líka fyrir að starfsmenn nota tímann á slíkum fundum til að hræra í tölvunni sinni eða snjalltækjum og sumir jafnvel taka fram handavinnu sína á meðan á fræðslunni stendur. Fræðsla með hefðbundnum glærusýningum getur líka verið ágæt til síns brúks, þegar það á við en á fundum með starfsmannahópi sem þarf að koma sér saman um viðbrögð og vinnulag eru þær kannski ekki alltaf skilvirkasta leiðin. Ég hef sennilega ekki tölu á þeim fundum og fræðsluerindum sem ég hef haldið með þessu formi. Fræðsla um Olweus-áætlunina gegn einelti er dæmi um fundi þar sem verkefnisstjóri fer yfir glærur með fróðleik sem starfsmenn eiga að tileinka sér og stilla saman vinnu sína eftir því. Í gegnum tíðina hef ég haldið marga slíka fræðslufundi.
Um daginn stóð einmitt til að halda fræðslufund um Olweus áætlunina á starfsmannafund í skólanum og til að slá nokkrar flugur í einu höggi ákvað ég að nýta mér Nearpod við fræðsluna á þeim fundi. Með því vildi ég:
- Að æfa sjálfa mig í notkun Nearpod
- Kynna Nearpod aftur og betur fyrir starfsmönnum
- Fanga athygli og auka virkni fundarmanna með því að klæða gamalt efni í nýjan búning
- Kanna hvort næðist meiri gagnvirkni með Nearpod en með hefðbundinni glærusýningu og umræðum
Það er því niðurstaða mín að Nearpod er ekki síður verkfæri fyrir skólastjórnendur til að nota með starfsmönnum sínum heldur en verkfæri fyrir kennara með nemendum. Nearpod getur líka að mínu mati, betur en hefðbundin glærusýning, fangað athygli fundarmanna og einnig aukið gagnvirkni á starfsmannafundum. Það eitt ætti að geta orðið til þess að ég noti það aftur.
Fyrir þá sem hafa áhuga geta þeir smellt hérna og skoðað Nearpod kynninguna. Hún fjallaði um 4. kafla Olweus handbókarinnar sem er um eftirlitskerfi skólans.
